Galfyr Design

Gummi Galfyr

Gummi Galfyr er maðurinn á bakvið Galfyr Design. Ég byrjaði snemma að fikta í heimasíðugerð og html kóðun og er að mestu leyti sjálfmenntaður í þessu fagi. Ég hef sótt námskeið í heimasíðugerð hjá NTV (Nýji tölvu- og viðskiptaskólinn) og Tölvu og verkfræðiþjónustunni.
Í gegnum árin hef ég tekið að mér að setja upp minni vefsíður fyrir einstaklinga og smærri fyrirtæki. Ég hef orðið nokkra reynslu á þessu sviði og sem kemur sér vel við að pússla saman réttu heimasíðunni fyrir þig.
Allt of mörg vefsíðufyrirtæki leggja of mikla áheyrslu á útlit og uppsetningu. Málið er að hin venjulegi notandi nennir ekki að lesa meira en 3 línur á hverri síðu nema hann hafi þeim mun meiri áhuga á efninu. Ég legg mesta áherslu á að hafa heimasíður einfaldar og stílhreinar og sleppa öllu sem þarf ekki að vera. Ég passa upp á að síðan sé rétt kóðuð þannig að hún finnist vel í leitarvélum á borð við Goggle. Ef þú ætlar að selja vörur á netinu er ekkert mikilvægara en að síðan þín finnist þegar notandi er að "gúggla" vöru sem þú selur.

Með kveðju
Gummi Galfýr