Sumarfrí

Maður er búinn að hafa það bara nokkuð gott í sumarfríinu. Mjög notalegt að sofa út. Ég var nú samt byrjaður að fara í ræktina á morgnana en hef ekkert farið núna í viku líklega. Ég reyndar datt helvíti illa á línskautunum síðasta föstudag og búinn að vera hálf aumur í skrokknum síðan. En ég er að verða góður núna. Maður er aðeins lengur að jafna sig þegar maður er 32 ára og dettur á hausinn en þegar maður var 12 ára. hehehe !!! En það er bara þannig. En ég ætla að fara að drífa mig aftur í ræktina það er bara gaman.
Svo vonandi fer ég að komast í bóklega prófið á bifhjólið. Ég byrja allavega í ökutímum um helgina. Það verður BARA gaman. Svo er sumarbústaðaferð í Brekkuskóg um þarnæstu helgi. Og það verður vonandi toppurinn á sumarfríinu.

Til baka Share