Reykjadalur
Við Dragó fórum í hjólaferð niður Reykjadalinn við Hveragerði. Við fengum skutl upp kampana, að afleggjaranum við Ölkelduháls. Svo var hjólað upp á Ölkelduháls og síðan niður Reykjadalinn. Eins og venja er þá var mikið af fólki á ferðinni. Útlendingar eru yfirleitt mjög áberandi þarna ofan í lækjum með tærnar upp í loft. Dragó fannst nú ekki leiðinlegt að hlaupa þarna upp og busla í lækjunum. Veðrið var yndislega gott í kringum 18°.
