Kominn á fullt í ræktinni

Ég hef ekki verið að skrifa mikið inná síðuna hérna undanfarið. Núna er það fésbókin sem ríður öllu.
Annars er það að frétta af mér að ég hef það alveg þokkalegt þrátt fyrir allt og allt. Ég seldi reiðhjólið mitt í sumar vegna peningaleysis og er því hættur að hjóla í bili. En í staðinn fékk ég mér kort í ræktina og byrjaður í 6 vikna átaki og ætla að koma mér í gott form næstu mánuði. Svo er ég að byrja á námskeiði í Dale Carnegie og er það mjög gaman og lærdómsríkt. Þannig að það er alveg nóg að gera á milli vakta í álverinu. Svo eru við Dragó auðvitað alltaf á labbinu að skoða fallegar tíkur :)

Til baka Share