Windows 7
Ég var að setja upp Windows 7, sem er nýjasta stýriskerfið frá Microsoft eftir hið misheppnaða stýrikerfi VISTA. Ég nennti aldrei að nota VISTA sem var bæði þungt og óþægilegt í notkun. En það er annað á báti með Windows 7. Ég er mjög ánægður með þetta stýrikerfi og það er mjög þægilegt í notkun og mjög hraðvirkt af Microsoft kerfi að vera.
