Godbye 4 kg.
Það gengur vel í ræktinni. Ég náði að bæta mig helling á þessum 6 vikum sem ég var í karlaátakinu í Sporthúsinu. Ég náði að skafa af mér 4 kg og fór úr 24,7% fituprósentu í 19,3%. Þannig að maður er alveg að vera komin í kjörfituprósentu sem er ca 15-18 í mínu tilfelli.
Ég ákvað að taka annað átak næstu 6 vikurnar og koma mér í ennþá betra form og bæta mig meira. Ég hef svo verið að fara meira að lyfta á milli þess sem maður er að púla í átakinu. Maður er líka farinn að finna gríðarlegan mun á sér. Formið er miklu betra og lífið léttara.
